Vörubakarí
Heilt nýbakað brauð með stökkri skorpu

Úrvalið

Fjórar tegundir af bakkelsi með súkkulaði og glassúr

Bakkelsi

Nýbakað brauð og bakkelsi, bakað frá grunni í Vestmannaeyjum.

  • Brauð

    Franskt súrdeig, Heimaklettur, rúgbrauð og Bláfjallabrauð.

  • Rúnstykki

    Birki rúnstykki, osta rúnstykki og gróf rúnstykki.

  • Snúðar

    Cinnabun, karamellusnúðar og snúðar með ekta súkkulaði.

  • Vínarbrauð og croissant

    Sérbakað vínarbrauð, vínarbrauðslengjur og croissant.

  • Kleinur og kleinuhringir

    Kleinur, kleinuhringir og Langi Jón.

  • Salt bakkelsi

    Skinkuhorn, ostaslaufur og smurt rúnstykki.

Bakari mótar deig í bakaríinu

Um Vörubakarí

Vörubakarí er systurstaður Vöruhússins í Vestmannaeyjum. Eigendur Vöruhússins, Anton Örn Eggertsson, Hildur Rún Róbertsdóttir, Róbert Agnarsson og Sigrún Ósk Ómarsdóttir, eiga bakaríið ásamt Viktori Ingasyni bakarameistara.

Í Vörubakaríi leggjum við áherslu á gott hráefni og vandað handverk. Hjá okkur finnur þú nýbakað brauð og bakkelsi með kaffinu, ásamt tertum sem hægt er að panta fyrir afmæli og önnur tilefni.

Vörubakarí — upprunalegt gullmerki

Myndir